Konudagur

Í tilefni konudagsins sem var 25.febrúar buðu börnin í leikskólanum mömmum sínum og ömmum í morgunmat í leikskólanum föstudaginn 23.febrúar. Boðið var uppá rúnstykki, smjör, ost, sultu og vínber. Gullmolakórinn steig á stokk og söng nokkur lög og eftir matinn buðu börnin gestunum að skoða myndir sem þau höfðu teiknað af mömmum og ömmum. Við þökkum öllum gestunum kærlega fyrir komuna til okkar.
Fréttamynd - Konudagur

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn