Mömmum og ömmum boðið í morgunmat
Í tilefni konudagsins var mömmum og ömmum barnanna í skólanum boðið í morgunmat föstudaginn 17.febrúar. Boðið var uppá rúnstykki með smjöri, osti og sultu, kakómalt og vatn.
Gullmolakórinn steig svo á svið og flutti nokkur lög fyrir viðstadda.
Við þökkum öllum þeim fjölmörgu mömmum og ömmum sem mættu fyrir komuna.