Uppeldi og menntun leikskólabarna er samvinnuverkefni allra kennara í Arnarsmára þar sem velferð og hagur barna á að vera leiðarljós í öllu starfi. Veita á börnum umönnun og menntun, búa þeim hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og örugg náms- og leikskilyrði. Nám í leikskóla er samþætt og fer fram í leik, umönnun, samskiptum, skapandi starfi og  hugsun þar sem hverju barni er mætt þar sem það er statt í námi og þroska. Leikur er nám.