Útskrift

Miðvikudaginn 29.maí voru elstu börnin í leikskólanum útskrifuð og eftir sumarið munu þau svo hefja grunnskólagöngu sína. Útskriftarhátíðin var haldin í sal Smáraskóla og byrjaði hún á því að börnin sungu nokkur lög fyrir gesti og fóru með setningar úr Barnasáttmálanum um réttindi barna. Börnin voru síðan útskrifuð og eftir það var gestum boðið uppá vöfflur með rjóma og sultu.
Fréttamynd - Útskrift Fréttamynd - Útskrift

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn