Sveitaferð

Fimmtudaginn 15.maí var farið í sveitaferð á bæinn Miðdal í Kjós. Þar fengum við að ganga um og skoða dýrin á bænum, hesta, kýr, kindur, nýfædd lömb og hænur. Á bænum voru líka kettir og hundurinn Sítróna. Einnig var hægt að leika úti, róla og hoppa í hey, setjast á gamla dráttarvél og fleira skemmtilegt. Áður en við héldum aftur heim á leið var svo pylsupartý. Við þökkum öllum gestunum sem komu með okkur kærlega fyrir góðan dag í sveitinni.
Fréttamynd - Sveitaferð Fréttamynd - Sveitaferð

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn