Jólaball

Í dag var haldið jólaball í Arnarsmára. Ballið byrjaði á því að allir söfnuðust saman í salnum og dönsuðu í kringum jólatréð. Á meðan við vorum að dansa komu skemmtilegir gestir í heimsókn, þeir Skyrgámur og Kjötkrókur. Þeir dönsuðu og sungu með okkur nokkur lög og gerðu nokkur prakkarastrik í leiðinni. Eftir sönginn og dansinn settust sveinarnir svo niður með börnunum og skoðuðu í pokana sína. Og viti menn, í þeim leyndust gjafir handa öllum börnunum. Eftir að allir höfðu fengið gjafir kvöddu sveinarnir okkur því þeir þurftu að halda áfram að sinna sínum verkefnum fyrir jólin.

Í hádeginu var svo pylsupartý og í kaffiflæði var boðið upp á piparkökur og mandarínur.