Dagur leikskólans - Stóri læsisdagurinn
6.febrúar ár hvert er Dagur leikskólans. Í tilefni dagsins var Stóri læsisdagurinn í Arnarsmára. Við vorum með Opið flæði en þá mega börnin fara um allan skólann. Á ýmsum stöðum í skólanum voru stöðvar þar sem börnin gátu gert læsistengd verkefni, meðal annars var bókabíó, hægt að búa til sögur, leira stafi og margt fleira.
Börnin voru mjög dugleg að prófa verkefnin og var gaman að sjá samvinnu milli barnanna, eldri börn að hjálpa yngri og allir að hjálpast að við að leysa verkefnin.