Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur
Í síðustu viku voru skemmtilegir dagar, Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur.
Bolludagurinn var nokkuð hefðbundinn hjá okkur en í hádegismatinn fengum við fiskibollur og svo fengum við vatnsdeigsbollur með rjóma, sultu og súkkulaði í kaffiflæði.
Á Sprengidag léku nokkrir kennarar fyrir okkur leikritið um Gullbrá og birnina þrjá. Allir skemmtu sér mjög vel á sýningunni og var mikið hlegið. Í hádeginu fengum við svo saltkjöt í matinn.
Á Öskudag mættu börn og kennarar í búningum eða öðrum skemmtilegum fötum. Haldið var öskudagsball í salnum og eftir það var síðan haldið í conga-röð um skólann. Því næst var kötturinn sleginn úr tunnunni og börnin fengu snakk. Í hádeginu var svo pylsupartý þar sem börnin "keyptu" sér pylsur fyrir peninga sem þau höfðu búið til.