Listavika
Dagana 3.– 9.mars var Listavika í Arnarsmára. Í Listaviku er börnum skólans skipt í 10 hópa og er unnið á fimm svæðum. Á svæðunum var unnið með þarfirnar okkar í Uppbyggingarstefnunni og einnig var á einu svæðinu unnið með Barnasáttmálann.
Svæðin voru:
- Listasmiðja: Í listasmiðju var unnið með þörfina Frumkvæði. Þar var rætt um hvað frumkvæði þýðir og hvernig við getum sýnt frumkvæði. Síðan gerðu börnin listaverk úr jarðleir og notuðu sitt frumkvæði til að ákveða hvað þau ætluðu að búa til. Jarðleirinn verður síðan brenndur og málaður.
- Matsalur: Í matsal var unnið með Barnasáttmálann. Þar var rætt um Barnasáttmálann, réttindi og hvernig þau sæju fyrir sér yndislegan heim. Síðan gerðu þau mynd af sjálfum sem var sett á hnöttinn . Að lokum voru gróðursett sólblómafræ og verða sólblómin síðan sett út í sumar.
- Hreyfisalur: Í hreyfisal var unnið með þörfina Gleði. Þar var rætt um hvað gleði þýðir og hvernig hægt er að sinna gleðiþörfinni okkar á jákvæðan hátt. Börnin fengu svo að prófa hljóðfæri og einnig að stíga upp á svið og syngja í míkrófón.
- Leiksmiðja: Í leiksmiðju var unnið með þörfina Frelsi. Þar var rætt um hvað frelsi þýðir og hvernig hægt er að sinna frelsisþörfinni á jákvæðan hátt. Síðan fengu börnin að mála og fengu þau algert frelsi um hvað þau vildu mála og hvernig.
- Fundarherbergi: Í fundarherberginu var unnið með þörfina Öryggi. Þar var rætt um öryggi, hvað það þýðir og hvað við þurfum til að uppfylla öryggisþörfina. Börnin bjuggu síðan til sögu sem fjallar með einhverjum hætti um öryggi og síðan teiknuðu þau myndir af einhverju sem kom fyrir í sögunni.