Sveitaferð
Fimmtudaginn 8.maí fórum við í sveitaferð á bæinn Miðdal í Kjós. Þar fengum við að ganga um og skoða dýrin á bænum, hesta, kýr, kálfa, kindur, nýfædd lömb, geit, kiðling og hænur. Á bænum voru líka kettir, kettlingar og hundarnir Tumi og Sítróna. Síðan var hægt að leika úti, róla og hoppa í hey, setjast á gamla dráttarvél og fleira skemmtilegt. Áður en við héldum aftur heim á leið var svo pylsupartý. Við þökkum öllum gestum sem komu með okkur kærlega fyrir góðan dag í sveitinni.