Útskrift Gullmola
Miðvikudaginn 27.maí var haldin útskriftarhátíð þar sem Gullmolarnir voru útskrifaðir úr leikskólanum. Börnin buðu fjölskyldum sínum á hátíð í sal Smáraskóla þar sem þau sungu nokkur lög, fóru með setningar úr Barnasáttmálanum og voru formlega útskrifuð. Eftir athöfnina var öllum boðið uppá köku og kaffi.
Þó að Gullmolarnir séu nú útskrifaðir eru þau ekki alveg hætt í leikskólanum, en þau verða með okkur fram að sumarfríi. Eftir sumarfrí tekur svo grunnskólagangan við.
Við í Arnarsmára óskum öllum Gullmolum og fjölskyldum þeirra velfarnaðar í framtíðinni og þökkum þeim fyrir tímann í leikskólanum.