Útskriftarferð Gullmola
Föstudaginn 29.maí fóru Gullmolarnir í Arnarsmára í útskriftarferð í Vatnaskóg. Um morguninn fóru þau með rútu í Vatnaskóg og þar gerðu þau ýmislegt skemmtilegt, t.d. fóru þau í skógarferð og hoppuðu í hoppuköstulum. Í hádeginu fengu þau pizzu og köku.
Seinni partinn komu þau svo heim aftur, þreytt en ánægð með skemmtilegan dag.