Sumar- og sólblómahátíð

Fimmtudaginn 11.júní var haldin Sumar- og sólblómahátíð í Arnarsmára. Foreldrum og öðrum gestum var boðið á hátíðina sem haldin var milli 15 og 16.

Á hátíðina komu blöðrulistamenn sem bjuggu til blöðrudýr fyrir börnin. Síðan var hægt að fara á nokkrar stöðvar þar sem var t.d. hægt að fara í myndabingó í skóginum, blása sápukúlur og dansa á sviðinu. Einnig gátu gestir farið inn í skólann og skoðað ýmis verk sem börnin hafa unnið á skólaárinu. Þá bauð foreldrafélagið upp á ís fyrir alla.

Við þökkum öllum gestum kærlega fyrir komuna og skemmtunina á hátíðinni.
Fréttamynd - Sumar- og sólblómahátíð Fréttamynd - Sumar- og sólblómahátíð

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn