Sumarlokun
Nú fer að koma að því að leikskólinn loki fyrir sumarfrí. Leikskólinn lokar kl: 13.00 þriðjudaginn 7.júlí og opnar svo aftur fimmtudaginn 6.ágúst kl: 13.00.
Við óskum þess að allir eigi gott sumarfrí og hlökkum til að sjá alla endurnærða í ágúst. Þeim sem eru að hætta í leikskólanum þökkum við kærlega fyrir samveruna og óskum ykkur og fjölskyldum ykkar góðs gengis í verkefnum framtíðarinnar.