Nýtt skólaár og Árgangaskiptahátíð
Nú er nýtt skólaár hafið og hlutirnir hægt og bítandi að færast í réttar horfur. Fataherbergin og útiklósettin eru að verða tilbúin eftir endurbætur í sumar og líta þau mjög vel út.
Fyrsta aðlögunin okkar byrjaði á mánudaginn og eru börnin því búin að vera viku í leikskólanum núna. Þau eru að læra betur og betur á lífið í leikskólanum og gengur allt vel. Næsta aðlögun hefst svo n.k. mánudag og síðasta aðlögun haustsins hefst 31.ágúst.
Síðastliðinn miðvikudag var svo Árgangaskiptahátíðin okkar. Á henni er börnunum "breytt" og þannig verða Garpar að Gullmolum, Grallarar verða Garpar, Gormar verða Grallarar og Grjón verða Gormar.
Hver árgangur fyrir sig fór saman upp á svið þar sem þeim var "breytt" og síðan sungu þau saman eitt lag. Þegar búið var að breyta öllum fengu svo allir snakk.
Að hátíðinni lokinni fóru börnin svo inn á sínar deildir og börnin sem voru að skipta um deild fluttu allt sitt dót og föt á nýju deildina.