Vináttuganga - Gengið gegn einelti

Í dag fóru börnin í leikskólanum í vináttugöngu, þar sem gengið var gegn einelti.

Gullmolar voru sótt í leikskólann af nemendum í 10.bekk í Smáraskóla. Þau gengu svo saman í Smáraskóla þar sem þau léku sér saman ásamt nemendum af leikskólanum Læk og nemendum úr 5.bekk og 10.bekk í Smáraskóla. Síðan var börnunum fylgt aftur upp í leikskóla.

Garpar og Grallarar gengu saman að planinu við enda Grundarsmára. Þar sungu þau nokkur lög og ræddu saman um vináttu áður en þau gengu aftur í leikskólann.

Gormar og Grjón gengu umhverfis skólalóðina. Á leiðinni hlustuðu þau á lög um vináttu og dönsuðu við lögin.
Fréttamynd - Vináttuganga - Gengið gegn einelti

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn