Haust
Lög mánaðarins
-September-
- Gulur, rauður, grænn og blár 100
- Hjólin á strætó 19
- Krummi krunkar úti 54
- Lagið um það sem er bannað 123
- Gamli Nói
- Litli Óli í skógi ( sætan hund, stóran skógarbjörn, feita kú, sæta mjaltarstelpu, sterkan skógarhöggsmann). 62
- Dúkkan hennar Dóru 106
- Kalli litli kónguló 45
- Upp, upp á fjall 71
- Í leikskóla er gaman 14
- Datt í kolakassa 71
- Emil í kattholti 24
- Skúraský 93
- Fuglinn segir bí, bí, bí 77
- Dyggðarlagið: Tillitssemi 13
-Október-
- Það var einu sinni api 68
- Allir krakkar 16
- Arnarsmáravinir 11
- Faðir Abraham 115
- Stóra brúin 19
- Ef sólin væri á bragðið... 33
- Meistari Jakob 100
- Nú er úti norðanvindur 135
- Lína langsokkur 24
- Skýin 93
- Fimm litlir apar 69
- Hey, baluba71
- Litirnir 100
- Söngvasveinar 38
- Dyggðarlög: Tillitssemi og Agi/hlýðni 13
Vetur
Lög mánaðarins
-Nóvember-
- Afi minn og amma mín 77
- Sigga litla systir mín 77
- Tilfinningablús 114
- Vinalagið 11
- Höfuð, herðar, hné og tær 115
- Hreyfa litla fingur 112
- Fingravísur 117
- Datt í kolakassa 71
- Klappa saman lófunum 116
- Sértu glaður 113
- Frost er úti fuglinn minn 50
- Litli Óli í skógi 62
- Lagið um það sem er bannað 123
- Krummi svaf í klettagjá 53
- Bátasmiðurinn 20
- Aravísur 25
- Dyggðarlagið : Agi/hlýðni og Heiðarleiki 13
-Desember-
- Jólasveinar einn og átta 141
- Aðventukertin 137
- Heims um ból 157
- Jólasveinar ganga um gólf 141
- Ég sá mömmu kyssa jólasvein 141
- Skreytum hús með greinum grænum 147
- Jólastjarnan 154
- Nú skal segja 151
- Jólaklukkur klingja 155
- Snæfinnur snjókarl 144
- Bráðum koma blessuð jólin 149
- Gekk ég yfir sjó og land 148
- Adam átti syni sjö 142
- Í skóginum stóð kofi einn 142
- Skín í rauðar skotthúfur 146
- Folaldið mitt hann Fákur 148
- Göngum við í kringum 150
- Nú er Gunna á nýju skónum 153
- Jólasveinninn minn 138
- Þá nýfæddur Jesú 137
- Babbi segir, babbi segir 149
- Dyggðarlag: Heiðarleiki 13
-Janúar-
- Dyggðarlag: Heiðarleiki/Fyrirgefning 13
- Faðir Abraham 115
- Ef sólin væri á bragðið... 33
- Datt í kolakassann 71
- Það var einu sinni api 68
- Dýrin í Afríku 63
- Sagan af Gutta 35
- Sprettur 60
- Það er leikur að læra 37
- Á Sprengisandi 58
- Nú er úti norðanvindur 135
- Fimm litlir apar 69
- Gráðug kerling 31
- Emil í Kattholti 24
- Frost er úti fuglinn minn 50
- Krummi svaf í klettagjá 53
- Klappa saman lófunum 116
- Lagið um það sem er bannað 123
- Tveir kettir 55
- Tröllavísur 74
- Hey Baluba 71
- Ding Dong sagði... 64
- Lína langsokkur 24
- Þorramatur 133
-Febrúar-
- Dyggðarlag: Fyrirgefning/Iðjusemi 13
- Meistari Jakob 100
- Stóra brúin 19
- Lína langsokkur 24
- Söngvasveinar 38
- Litli Óli í skógi 62
- Rokkabilli rokk 23
- Afi minn og amma mín 77
- Bátasmiðurinn 20
- Dansað á pallinum 71
- Hó hó! 74
- Bangsi lúrir 83
- Gráðug kerling 31
- Emil í Kattholti 24
- Fatavísur 18
- Ég heiti Keli káti karl 98
- Frost er úti fuglinn minn 50
- Krumminn á skjánum 54
- Hani, krummi, hundur, svín 54
- Mánuðirnir 125
- Aravísur 25
- Þorraþræll 1866 131
- Upp, upp, upp á fjall 71
- Þorramatur 133
Vor
Lög mánaðarins
-Mars-
- Dyggðarlag: Iðjusemi/Kurteisi 13
- Þula: Heyrði ég í Hamrinum
- Á sprengisandi 58
- Uppi á grænum… 72
- Það búa litlir dvergar 76
- Afi minn fór á honum Rauð 77
- Arnarsmáravinir 11
- Berta bakarísterta 39
- Dansi, dansi dúkkan mín 106
- Ding dong 64
- Dvel ég í draumahöll 83
- Ég skal mála allan heiminn 109
- Ein stutt, ein löng 34
- Höfuð, herðar, hné og tær 115
- Krummi krunkar úti 54
- Klappa saman lófunum 116
- Lítið lasið skrímsli
- Litla flugan 60
- Litlu andarungarnir 49
- Skúraský 93
- Söngvasveinar 38
- Hjólin á strætó 19
- Það var einu sinni api 68
- Ég sendi þér fingurkoss 11
-Apríl-
- Dyggðarlag: Kurteisi 13
- Sá ég Spóa 50
- Lóan er komin 119
- Sigling 21
- Fimm litlir apar 69
- Lagið um það sem er bannað 123
- Bí,bí og blaka 83
- Dýrin í Afríku 63
- Úti um mela og móa 61
- Sólin skín og skellihlær 89
- Með sól í hjarta 90
- Nammilagið 33
- Bátasmiðurinn 20
- Fuglinn segir 77
- Bangsi lúrir 83
- Fílalagið 67
- Keli káti karl 98
- Sól, sól skín á mig 89
- Litlu andarungarnir 49
- Hani, krummi, hundur, svín 54
- Siggi var úti 40
- Uppi á grænum, grænum 72
- Vorvindar glaðir 85
- Vorvísa 87
Sumar
Lög mánaðarins
-Sumar-
- Dyggðarlag: Virðing 13
- Sá ég Spóa 50
- Lóan 84
- Sumarkveðja
- Ef þú ert súr
- Strætisvagninn 19
- Skýin 93
- Litirnir 100
- Úti um mela og móa 61
- Sólin skín og skellihlær 89
- Með sól í hjarta 90
- Nammilagið33
- Dvel ég í draumahöll 83
- Fuglinn segir bí, bí, bí 77
- Fagur fiskur í sjó 118
- Dansað á pallinum 71
- Kolakassinn 71
- Sól, sól skín á mig 89
- Litlu andarungarnir 49
- Stökur 77
- Sofðu unga ástin mín 83
- Uppi á grænum, grænum 72
- Vorvindar glaðir 85
- Vorvísa 87
Þula mánaðarins
Janúar:
Þula um dagana
Sunnudagur sagði:
“Þorið þið að mæta mér?
Mánudagur flýtti sér.
Þriðjudagur þagði.
Miðvikudagur fór svo flatt,
að fimmtudagur um hann datt.
En föstudagur hljóp svo hratt
að hendur á hann lagði
laugardagur, byrstur mjög í bragði.
En þá var vikan liðin
og kyssti litlu börnin,
sem lásu og voru iðin,
Þetta er alveg satt.
Svo kemur næsta vika,
þá gengur það nú glatt.
Febrúar:
Nú koma kýrnar
Nú koma kýrnar
og klóra á sér brýrnar.
Nú koma ærnar
og klóra á sér tærnar.
Nú koma lömbin,
svöng er í þeim vömbin.
Nú kemur féð,
klórar á sér hnéð.
Nú koma nautin,
þau éta grautinn.
Nú koma hestarnir
og vel ríða prestarnir!
Mars:
Sviðaþula
Karl tók til orða,
mál væri að borða,
þá kom inn diskur,
var á blautur fiskur,
hákarl og rætur
og fjórir sviðafætur.
Upp tók hann einn,
ekki var hann seinn,
gerði sér úr mann,
Grettir heitir hann.
Hvað kann Grettir vel að vinna?
Hann fór út í eyjar
Svæfði þar meyjar
Kýr og kálfa
Og keisarann sjálfan.
Lambið beit í fingur minn
Spói féll í áragil
Tittlingur í mýri
Setti upp á sig stýri
Úti er ævintýri.
Apríl:
Fagur fiskur í sjó
Fagur fiskur í sjó,
brettist upp á halanum
með rauða kúlu á maganum.
Vanda, banda,
gættu þinna handa.
Vingur, slingur,
vara þína fingur.
Fetta, bretta,
svo skal högg á hendi detta.
Maí:
Græn eru laufin
og grasið sem grær.
Glóðin er rauð
og eldurinn skær.
Fífill og sóley
eru fagurgul að sjá.
Fjöllin og vötnin
og loftin eru blá.
Hvítur er svanur
sem syndir á tjörn.
Svartur er hann krummi
og öll hans börn.
Júní:
Krumminn í hlíðinni
Krumminn í hlíðinni
hann fór að slá.
Þá kom Lóa lipurtá
og fór að raka ljá.
Hann gaf henni hnappa þrjá
og bannaði henni að segja frá
en hann spói spíssnefur
hann sagði frá,
prakkarinn sá.
Þó var ljáin ekki nema
hálft annað puntstrá.
Ágúst:
Talnaþula
Einn og tveir
inn komu þeir,
þrír og fjórir,
furðustórir,
fimm, sex, sjö og átta,
svo fóru þeir að hátta.
Níu, tíu, ellefu og tólf,
lögðu plöggin sín á gólf,
svo fóru þeir að sofa
og sína drauma lofa.
En um miðjan morgun
hún mamma vakti þá,
þrettán, fjórtán, fimmtán, sextán,
fætur stukku á.
Svo fóru þeir að smala
suður fyrir á,
sautján, átján lambærnar
sáu þeir þá,
nítján voru tvílembdar
torfunum á,
tuttugu sauðirnir
suður við sel.
Teldu nú áfram
og teldu nú vel.
September:
Klukkurím
Klukkan eitt
eta feitt.
Klukkan tvö
baula bö.
Klukkan þrjú
mjólka kú.
Klukkan fjögur
kveða bögur.
Klukkan fimm
segja bimm.
Klukkan sex
borða kex.
Klukkan sjö
segja Ö.
Klukkan átta
fara að hátta.
Klukkan níu
veiða kríu.
Klukkan tíu
kyssa píu.
Klukkan ellefu
fleyta kellingu.
Klukkan tólf
ganga um gólf.
Október:
Andrés önd
Andrés önd
fór út í lönd
fékk sér eldrauð axlabönd.
Mikki mús
Mikki mús byggði sér hús.
Húsið brann og Mikki rann.
Mikki mús fékk á sig lús
og geymir hana í sultukrús.
Nóvember:
Krumminn á skjánum
Krumminn á skjánum,
kallar hann inn:
“gef mér bita'af borði þínu,
bóndi minn!”
Bóndi svara býsna reiður:
“Burtu farðu, krummi leiður.
Líst mér að þér lítill heiður,
ljótur ertu'á tánum,
Krumminn á skjánum.”
Desember:
Grýla reið með garði
Grýla reið með garði,
gekk með henni Varði.
Hófar voru á henni,
hékk henni toppur úr enni.
Dró hún belg með læri,
börn trúi ég þar í færi.
Valka litla kom þar að
og klippti á gat með skæri,
tók hún band og hnýtti á hnút
og hleypti öllum börnum út.
Svo trúi ég það færi